FARÐI

Farði sálarinnar er settur á,
smá bros og glampi í augum.
Hvítar tennur sem skína
og lýtalaus framkoma.

Um að gera að vera dama,
dansa tangó við maka.
Gera allt rétt
og tolla í tísku.

Undir öllu þessu: ÉG
og aðeins ÞÚ færð
að sjá mig í réttu ljósi,
- nakta litla sál.