þegar dimm og drambsöm augu mín
leita hana uppi og negla við vegginn
veit ég alveg hvað skal segja

þegar hrímaðar hláturtaugar
kítla klofnar tungur
verður steinninn að hjarta í brjósti mér

krafsandi beinaberar krumlurnar
benda miskunarlaust á þig
ÞÚ ERT FÖLSK!

Og þá verður þú að finna þér aðra holu að skríða í