Ef ætti ég öll himnana klæði
færði ég ykkur fátækum börnum,
hvern einasta dag, bláar skyrtur
og hvítar peysur.
Öllum yndislegu stúlkubörnunum
ljósrauða kjóla og bleika sokka
í fæðingu hvers dags,
fjörmiklum strákum, sem vakna
allslausir að morgni dags
bómullar boli og ljósbláar buxur.
Hvað allt yrði auðvelt og fagurt
ef spunnið gæti ég náttföt og kjóla
úr húminu sem tendrar stjörnurnar
tunglið og draumana ykkar.