Syngið syngið fuglar
syngið henni ljóðin mín,
að ég elski hana meðan sólin skín
og hafið kyssir bergið við sjávarströnd.
Að ég dái hana eins og svanirnir
sem dásama dimmblá heiða og fjallavötn,
að ég deyi fyrir hana
eins og nóttin fyrir degi.
Syngið henni, að með síðasta
blóðdropa myndi ég vökva rósina mína
á heitum sólar degi.