16:21

Stend niðrá Hlemmi.
Tólfan fer eftir fjórar mínútur.

Ég heyri vitsmunalegar samræður
á milli klukkunar og sjálfs míns.

Og það er engin hugsun annara manna
sem kemur upp á milli mín og mín.

Ég er ég-ið inn í mér.
Ég er í rauninni tvær persónur.
Ég og ég sem hlusta.

16:27

Ég missti af strætó.


L.