Í sandinum niður við sjó
sé ég töfra alheimsins rétt við andlit þitt.
Hugsanir mínar um þig breytast í liti regnbogans,
sem kyssa þig kossum kærleikans.
Líkt og fagur rauður stóll sem sólin hvílir á
er hún sefur dreymandi í faðmi hafsins
þessa fögru stuttu Íslands nótt.

Kveðja Mayday