GEIMBELJA

Gátu legg og bið um svar.
Þolinmæði, skipulagning og allt það.
Það sem er erfiðast að ná
er sætast að fá.

Dreymir um stærri stöðu
í lífinu að ná.
Óyfirstíganleg fantasía
er það eina sem hún vill fá.

Segir hana ekki vita allt,
stundum sé heitt kalt.
Maður hefur ekki alltaf rétt fyrir sér,
hvað er hann að segja mér?

Hver segir það og af hverju,
hvernig ertu í alvöru?
Hann hræðist það sem koma skal
en hún hefur bara ekkert val.

Hún er þreytt og hverfur á braut,
góðar stundir og allt það skraut.
Hugsar um hann í sænginni hlýju
og hvíslar ástarorð að nýju.

Horfi á hann í fyrsta sinn,
með nýjum augum - minn.
Falleg augu himinblá,
nýrakaður - vá!