Glóandi gull
gleðifull
æska mín.
Heita hjarta
ástarbjarta
ásýnd þín.
Vermandi von
draumason
í huga þér.
Yndi mitt
hjarta þitt
við hjarta mér.

Elskandi móður
jarðargróður
á mínu landi.
Brosandi gefur
er þú sefur
rós í sandi
Gríptu karfann!