Hér er ljóð sem ég er mjög ánægð með og held að hafi nú bara heppnast nokkuð vel hjá mér! :) hvað finnst ykkur?? Og hvað finnst ykkur um ljóðið sem ég sendi inn, 10. des (dagamunur) ? bara gaman að fá álit annara….. !

Fallegur lagstúfur
sem minnir á þig
Snjórhvítar bréfdúfur
hertaka mig
Svo sakleysislega
þær fljúga afstað
Enginn þér sagði
að ég vissi það;
Hvert dúfurnar færu
endastöðin sú
þar sem enginn væri
þarmeð enginn þú

Á leiðinni söng ég
lagið á enda
og kveið þess svo sárt
þarna að lenda.



Hvað finnst ykkur?