Saknirðu mín
er ég tárið sem glitrar á kinn
morgundöggin á rósarblaði,
gróðurskúr á heitum sumardegi
og blærinn sem strýkur tárvotan vanga.
Ég er líka stjarnan þín sem skærast skín
á björtu kvöldi
og sólargeislinn sem læðist inn um
gluggann þinn.
Ég er í öllu sem þú gerir og sérð
og gáirðu betur,er ég líka innra með þér.