Þú varst alltaf
eins og
garnagaulið
í rafmagnslínunum.

Fæ ég ennþá
þetta hálfa volt
eða er
strengurinn
búinn að slitna
einhvers staðar
á leiðinni?


m.m.