LEMDU MIG AFTUR

Lemdu mig aftur
Þú sem átt ekkert öryggi
Strengjabrúða
Sem hangir á bláþræði
Og sérð ekki hvað heldur í hinn endann

Lemdu mig aftur
Þú sem átt enga ástvini
Hamingjublóðsuga
Sem stelur ást annarra
Til að halda sér á lífi

Lemdu mig aftur
Þú sem átt enga von
Steinsteypuskór
Sem dregur aðra með sér
Svo þú sért ekki ein(n) á botninum