Hvar er lífið sem ég taldi að væri selt í stórmarkaðinum
Innum pakkasúpur og kex?
Já, hvar er það líf, þetta staðlaða líf.
Ég finn það hvergi.
Ég leita búð úr búð frá kaupmanni til kaupmanns í smára og kringlu
er jafnvel með stjörnukíki til að leita
er það að finna hér í sólkerfinu þetta líf sem ég leita af?
Hafa vísindamenn uppgvötað það og stílfært til fjöldaframleiðslu?
Dauðan finn ég og er þó ekki að leita.
Hann er í síkarettuni og ljósum príddum skemtistöðum.
Hann er sveittur á dansgólfinu í alsælu.
Hann er í strætinu, hann er í gogganum, hann er í rauðsprittinu rámur og hás.
Hann læðist að vitundum saklausra barna í formi saklausra leikja
hann er í bannapíuni sem horfir á saklaust porn með saklausa kærastanum sínum.
Dauðinn er ríkjandi allstaðar í fréttunum, jafnvel í saklausum kostningum og fegurðarsamkepnum.
En hvar er þetta líf sem ég sem mér var heitið í vögguni og á leikskólanum áður en barna pían kom og spilti minnu vitund. Áður en fréttirnar smugu inní sálina.
Já því finn ég það ekki í hillunum innum tískuvörurnar.
Bandið spllar dauðamarsinn og sveittur strákur á skemtistað dansar með og saklaus stelpa dansar með án þess þó að vita við hvaða mars hún sé að dansa við.
Og börnin byrja að singja þá var kátt í höllini við lag dauða bandsins.
Þetta er ljóð mitt til þín, já til þín sem kannt að geyma mitt líf .
Brjóst mitt er fullt af ótta og samviska mín er svört eins og samviskur virðulegra borgara.
Góðborgarar finnast ekki lengur það eru bara rík svín sem felast í fílabeinsturnum með dauðan ræktaðan í görðunum sínum. Það er bara samviskulaust ríkt fólk til sem hefur áhyggjur af sveiflum hlutabrefamarkaðins. Og það bír til fréttirnar og það eru fréttirnar sem spilltu minni sál. Og það er fólkið sem stal lífinu. Í frelsisins nafni.
Amen.