Stundum er tilveran svo undarleg ekki satt? Ég sat í stætó um daginn og sá ég litla dúfu fjúga og fór að velta henni aðeins fyrir mér, og hérna er afraksturinn…

Tilveran

Í náttmyrkrinu flýgur dúfa
eins og hvítur sendiboði
yfir gömlum húsum
í miðborginni.

Hjá sumum táknar þessi dúfa frið
En hjá öðrum
sem uppteknir eru af raunveruleikanum
er hún venjulegur hvítur fugl með vængi.

Lítil börn heillast af hæfni þessa fugls
þau vilja fljúga
eins og súpermann
eða flugvél.

Er dúfan bara þarna
eða er hún að flýja einhvern?
Er hún sjálfsagður hlutur
eða undraverð sköpun?