Hughreysting

Þótt það taki tíu árin
tíminn læknar ætíð sárin
þerra skaltu þungu tárin
þjáning burtu fer.
á þér hef ég miklar mætur
mun nú á þér hafa gætur
alla daga og allar nætur
áttu vin í mér.