Um Tómið

Mig klæjar
Mig svíður
Ég brenn.

Ég er í Tóminu
og ég er ein.
Ég stari útí myrkrið
og bíð eftir ljósinu.

Ég ligg og finn vatnið
dembast á mig.
Kalt vatn sem er bara í Tóminu.
Og ég vonast eftir ljósinu.

Svo held ég að ég sjái ljósið
Og ég bíð.
En það er bara myrkrið að hlæja að mér
þá veit ég að ljósið kemur ekki.

Lola