var það ekki nóttin
nóttin okkar
kalda nóttin um jólin
þegar þú hvíslaðir nafnið mitt
og það
var snjór
og það
var kalt úti
og það
var hlýtt undir sænginni
sænginni okkar
og við
héldum hvort um annað
fast fast
og það
var kalt úti
þegar þú sagðir mér hvað
þú værir heppinn að fá að kyssa mig
og þá fékk ég sko tár
og það
var kalt úti
og það
var nóttin
nóttin okkar

18-1999.