Ég heyrði óhljóð
eins og endalaust óp
úr víti
haturs öskur og volæði.

Ég komst að því seint um síðir
að þetta var bara hljóðið
frá skósólunum þínum
þegar þú gekkst á braut.

Ég legg við hlustir
en bergmálið virðist koma
frá mínu eigin hjarta.
-Sithy-