Gleymdu að ég hafi sagt
þú hafir stein í hjarta
götu mína þyrni lagt
og framtíð hafir bjarta

ég strönu þína kembi sem
ég barn hef misst á hafi
að sálarkofa tómum kem
á þvi er enginn vafi

að þú ert ég sem var í gær
og ég er engu síður
brunnin sól sem var svo skær
hjá tímanum mér líðu