Ást.

Tvö dimmblá augu
sem mættust í myrkri.

Tvær flöktandi sálir
á leið út í óvissuna

Tvö kristaltær tár
runnu niður vanga hennar

Tvær sterklegar hendur
þurrkuðu þau burt

Tvö saklaus hjörtu
sem slóu í takt.

Tvær ástfangnar verur
sem fundu hver aðra.

GÁ 2002