Ég rakst á bögg í Konqueror (held ég sé að skrifa það rétt) sem lýsir sér þannig að ef þú reloadar síðu sem inniheldur javascript þá freear hann ekki minnið sem það tekur að loada þá síðu. 10 refresh hækka minnisnotkunina um 1 Mb. Hann étur upp allt minnið í vélinni fyrir rest ef maður browsar alltaf í sama glugganum.

Ég er að keyra 5 vélar, eins og er, sem eru í vefskráningum þar sem sami glugginn er alltaf opinn og fólk er að skrá verkefnin sem það er að vinna í. Þetta geta verið nokkur hundruð flettingar á dag og hver vél endist yfirleitt frá klukkan 8 um morguninn og rétt fram yfir hádegi áður en það þarf að restarta browsernum.
Það er Redhat 7.3 og kde 3.0.3 á vélunum

Mér fanst rétt að láta fólk vita af þessu og jafnvel að þið testið þetta hjá ykkur líka svo ég sé pottþéttur að þetta sé ekki bara í uppsetningunni hjá mér.
En ég leysti þetta bara með því að skipta um browser, kominn með Opera núna og það virðist allt virka mikið betur.