Sælt verið fólkið.
Ég er að forrita í c++ og þarf, í þetta tiltekna forritunarverk, nokkur library þar á meðal libsigc++. Ég hafði hugsað mér að vinna þetta í windows með Visual c++ en ég þarf að smíða dll skránna fyrst, í unix er það langauðveldast ./configure, make og make install. Mér datt í hug að compila libsigc++ í cygwin í staðinn fyrir VC++, það gekk fullkomlega en dll skráin ber heitið cygsigc-2.0-0.dll.
Ég er ekkert sérlega vel að mér í þessum málum en get ég linkað þessa dll skrá í VC++ eða þarf ég að compila hana sérstaklega í VC++? Þ.e er einhver munur á að compila í cygwin með make og í VC++?