Er einhver umræða um Kubuntu til hér á vefnum eða annarsstaðar á íslensku. Er einhver hópur sem er að nota þetta kerfi dags daglega hér. Er hægt að hlaða niður nýjum útgáfum af íslenskum vefþjónum?
Nei ég bara svona spyr, það er nefnilega svo oft sem mann langar til að deila reynslu sinni með öðrum þegar maður uppgvötvar eitthvað nýtt eða lendir í undarlegum aðstæðum við notkun á kerfinu. Einnig rekst maður stundum á hluti sem hljóma skemmtilega en reynast svo miður vel þegar á hólminn er komið. Ég hef t.d. legið eitthvað á IRC fyrir Kubuntu og finnst það frekar lamað. Kubuntu forum eru skárri en þvílíkur hafsjór af vandamálum en flest þeirra hefur maður ekki rekist á enn, en setur bak við eyrað upp á seinni tíma :-/