Sælir (og sælar)
Ég er að lenda í pínu böggi með ssh-keygen og allt það dótið, tjah, eða málið er það að þrátt fyrir miklar spekúleringar veit ég ekkert hvað ég á að gera.

Mér tókst nú að búa til blessaðan lykilinn (identity.pub) enda það lítið mál en er nú að reyna að gera þetta virkt, með ssh-add og ssh-agent. Gæti einhver rúllað yfir það snöggt hvernig ég get loggað mig á server á þess að slá inn lykilorð?