Sæl öll,

Ég setti núna upp Fedora 8 og ætlaði að setja upp matlab eins og áður, nema núna þegar ég keyri upp matlab þá fæ ég eftirfarandi villu

MATLAB: xcb_xlib.c:50: xcb_xlib_unlock: Assertion `c->xlib.lock' failed.
Aborted

Ég var með matlab á Fedora 7 og það virkaði mjög vel. Ég er búinn að leita á netinu hvernig eigi að laga þetta, og þetta virðist vera eitthvað vandamál með Java. Kannast einhver við þetta og veit hvernig á að redda þessu.

kv. Finisboy