Sælir.
Ég er algjör byrjandi á Linux og ég setti upp Ubuntu á vél hjá mér (ekkert dual-boot).
Ég finn harða diskinn sem Ubuntu er á en ég er með tvo aðra harða diska sem ég finn ekki. Þeir eru NTFS en ég veit að Linux getur bara lesið af þeim en ekki skrifað á þá.
Svo að spurningin mín er, hvernig læt ég Ubuntu finna hörðu diskana, og hvernig get ég formatað þá í FAT32. Það eru engin gögn á þeim sem skipta máli semsagt ekkert backup ferli.

Með fyrirfram þökkum.
Garrison
Johnny (the homicidal maniac) og Squee(með Shmee) VS 2 mörgæsir í neðansjávarbardaga. Hver vinnur?