Hæ, það er eitt sem er að gera mig brjálaðann er að ég ætla að hafa dual boot á linux og windows xp. Þegar ég reyni að setja upp fedora core 3 64bit útgáfuna þá finnur hún ekki raid uppsetninguna mína. Ég er að nota 2x 160gb diska í raid 0 og fedorann sér bara báða diskanna í sitthvoru lagi. Þetta virkar í windows en ekki í linuxinum. Ég er búinn að leita út um allt að rekklum fyrir þetta og ekkert gengur, nema ég er búinn að rekast bara á forums þar sem fólk er að kvarta undan því að það geti ekki sett upp linux í raid 0. Ég er að nota MSI K8N Platinum útgáfuna, sem er Nforce 3. Hefur einhver hérna náð að setja linux dual boot á raid 0, nforce 3 kubbasetti ? Plz það væri gott að fá svar sem fyrst. :)