Ég er að nota sendmail 8.11.6 á RH 7.2 Linux boxi og hef undanfarið orðið var við að þótt flestur póstur sem sendur er frá Linux boxinu komist eðlilega til skila þá virðist allt sem sent er á simnet vera einhvernvegin blokkað.
Þegar ég skoða maillog sé ég línur fyrir þessa pósta sem líta út eins og þessi:

to=helgi.p@simnet.is, ctladdr=nobody, (99/99), delay=2+00:06:16, xdelay=00:00:00, mailer=esmtp, pri=4710200, relay=rip.simnet.is., dsn=4.0.0, stat=Deferred: Connection reset by rip.simnet.is.

Hefur einhver hér lent í einhverju svipuðu og gæti þá kannski komið með vísbendingu um hvað gæti verið að?

Takk