Ég var að rekast á eina frábæra síðu með einum tölvuleik sem flestir ættu að kannast við. Leikurinn sem ég er að tala um hér er hinn gamli en góði Street Rod. Það er verið að endurgera hann þ.e. koma honum í betra form en hann var í gamladaga. Leikurinn á að heita Street Rod 3 og verður open-source freeware. Það er komin Alpha útgáfa af leikum og ég vil bara hvetja sem flesta að líta á gripinn.

Hér er síða leiksins
http://srod.net-games.com/

P.S.

Þetta er reyndar ekki eina endurgerðin á þessum gamla leik. Electronic Arts er að gera aðra útgáfu sem verður bara on-line og mun sá leikur heita Motorcity online

Þið getið fundið upplýsingar um hann hér
http://www.motorcityonline.com/