Ég heilsa ykkur.

Ég keypti mér “MSI Wireless 11b PCI Card - PC11B2” hjá Tölvulistanum. Getur einhver aðstoðað mig við að finna Linux rekla fyrir þetta kort (þetta er í raun PCI kort, og síðan er loftnet sem tengist í kortið) ?

Ég er búinn að prófa google.com, og einnig vefsíðu MSI, en ekkert finnst. Samt stendur á vefsíðu MSI að Linux eigi að styðja þetta, en á disknum sem fylgir kortinu eru engir Linux reklar til staðar, heldur einvörðungu reklar fyrir Windows.

Ég kveð í bili.
Evdoxus frá Knídos.