Ég er búinn að leira útum ALLT að image til að brenna á disk! það er sama hvar ég leita. ég finn alltaf bara einhverja nokkra fæla sem að eru samtals eitthvað kringum 25mb.. sem að er greinilega ekki allt stýrikerfið.

ein síðan segir mér að ná í eitthvað helvítis jigdo og gefur mér svo óljósar upplýsingar um það hvar væri kanski mögulegt fyrir mig að finna þetta.

Miðað við þetta mætti halda að debian vilji ekki að fólk fari að nota linux. því að ég er búinn að sitja kófsveittur fyrir framan tölvuna í 2 tíma að leita að þessu helvíti á netinu og ekki en fundið neitt.

ef einhver vildi vera svo vænn að gefa mér link á image af debian, þá væri það alveg yndislegt ;)