Jæja…þá er komið að því að Linux er orðið eitt af hinum stórfrægu áhugamálum hér á huga og ekki seinna að vænna enda er Linux eitt af vinsælustu áhugamálum tölvumanna síðustu mánuði.

Ég hef sjálfur notað Linux í rétt rúmt ár og gleðst yfir því að geta rætt við aðra með sama áhugamál hérna á hugi.is.

Ef þið hafið ekki prófað Linux sjálf þá skuluð þið fylgjast með hérna og sjá hvort að áhuginn kvikni ekki fljótlega :)
JReykdal