Draumaskórnir mínir=DConverse for life.
Skipti um þráð í morgun og þráðurinn sem ég klippti burt var ekki nema 7-8mm, sem er vafið 2svar um tunguna, þannig það er undir 4mm eftir. Þetta gengur samt fáránlega hægt hér á lokasprettinum, en það er líka seigasti hlutinn á tungunni sem er að deilast núna, og þó ég bólgni ekki mikið og geti borðað hvað sem er vandræðalaust, þá er meiri sársauki núna heldur en hefur verið síðan á fyrsta degi og það blæðir meira. Er þó ekki alveg orðið það slæmt að ég sé farinn að éta verkjatöflur með því, en vona að þetta versni allavega ekki mikið áður en yfir líkur.
Fór í Klippingu um daginn ;) og lét bara jafna þetta allt út og lét lita það svart..