Ég var ein af fullt fullt af fólki sem var á Akureyrarvelli í kvöld. Það var allt troðið og já, ýmist var ýtt í mann eða manni óvart hrint á annað fólk. Ég var þar ásamt vinkonum mínum og allar erum við 14 ára og fólk var dónalegt og hrokafullt við okkur. ‘'Er eitthvað að ykkur ?’' ‘'Ohh svona krakkar, killer svipur’' og við vorum einmitt alls ekki að ýta við bara stóðum þarna og reyndum eins og annað fólk að komast þarna sómasamlega. Það voru 8 manns sem skömmuðu okkur fyrir alls ekki neitt.
Hvað finnst ykkur ? Ykkar reynsla ?
your bridges were burned, and now it's your turn