Vildi bara benda á þetta..

Tekið af flashmob.is

“Þessi atburður er tileinkaður fyrsta opinbera Flash Mob atburði heims, sem átti sér stað 17. júní á síðasta ári í Macy's versluninni í New York. Ef þú vilt vita meira um Macy's atburðinn getur þú lesið þessa grein.

Þann 19. júní, 2004 munum við fagna eins árs afmæli Flash Mob atburða. Þetta verður í annað skipti sem að alþjóðlegur Flash Mob atburður verður haldinn í heiminum.

Um allan heim, sama dag á sama tíma (staðartíma) munu mobbarar framkvæma sama atburðinn. Vestur og Austur Evrópa, Asía, Bandaríkin og Ástralía munu stjórna og taka þátt í stærsta atburð allra tíma! Fyrstir til að lesa handritið að atburðinum og fyrstir til að framkvæma atburðinn verða mobbarar á Nýja Sjálandi. Þeir síðustu sem framkvæma verða í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Ísland ættlar að taka þátt í þessum atburði. Til þess að gera atburðinn sem mest spennandi ættla þeir sem skipuleggja atburðinn (Global Flash Mob Organizers) ekki að gefa upp handritið að atburðinum strax. Eina sem er þegar vitað er að handritið mun samanstanda af 2 pörtum: fyrsti partur mun vera í stíl við venjuleg Flash Mob, síðari parturinn mun gefa okkur nýja upplifun á Flash Mob atburðum.

Ef þú vilt taka þátt í stærsta Flash Mob atburði sem hefur verið haldin, skráðu þig þá inn á vefinn og skráðu þig í atburðinn og taktu frá laugardaginn 19. júní (um klukkan 14:00-15:00).

Nánari upplýsingar verða birtar nokkrum dögum fyrir atburðinn!”

Um að gera að taka daginn daginn frá bara :D