Gaman er það að sjá fólk strollandi niður Laugaveginn drukkið, dansandi eða bara uppdópað til fjandans. Gaman er að sjá róna eyða bótunum sínum í öl, spilafíkla spila allan aurinn sinn, slagsmál milli “Hnakka” yfir smámunum t.d að hann var að glápa á gelflóðið í hausnum á honum. Gaman er að horfa á fólk brjóta á náunganum bara til að ná af honum veski sem er kannski tómt. Gaman er að horfa á umferðaslys orsakað af áfengi og asnaskap.

Fjör með smjör!

Furðulegt er samt fólk sem getur ekki virt hugsanir/skoðanir annara og heldur því fram að fólk megi ekki vera eins og það vill t.d. Goth/Punk/metal/Hardcore or whatever. Þeir sem keyra framhjá manni á Impressum og garga útum rúðuna “farðu í klippingu, lærðu að klæða þig” eða what ever. Fólk hefur skoðanir og frjálsann vilja. Enginn ætti að geta ráðgast með það hvernig næsti maður klæðir og hagar sér.

Þeim sem finnst cool að drekka skulu gera það, það er ekkert jafn asnalegt og að sjá einhverja gaura vera að heilaþvo krakka af því að áfengi/sígarettur/dóp sé kúl eða þá að sjá fyllibyttur vera að böggast í sXe krökkum og vera að segja þeim að þau séu lægri í fæðukeðjunni af því að þau eru ekki á kafi í áfengi eða einhverju drasli…. Ef svo skeður þá er bara að muna að þá kemur FINGURINN aftur að gagni!!!

Allt sem gert eða sagt er með særindi í huga er ALDREY þess virði, Orð geta leitt til ofbeldis, ofbeldi til áverka, og svo að lokum er einhver í vondum málum, sár eða verra… Ofbeldi er einhvað sem er einskis virði og enginn vinnur í.

Verst af þessu finnst mér fólk sem kemur á harðkjarnatónleika, fer í pittinn (sem er næstum heimili mitt) og verður svo pist off útaf því að einhver gaur var að rekast utan í hann eða að einhver tók geggjað stagedive og lenti á honum… Word to them fuckers: If you cant handel the fun than be somewhere else!

Hver þolir það ekki að einhver er að labba í bænum og verður svo fyrir áras af fólki á kafi í tísku… Ekki að maður sé einhvað mikið að horfa eftir svoleiðis. Fólk að gagnrýna mann útaf því að maður er ekki gangandi fatamerki. Fólk á að skilja að það eru ekki allir sem vilja vera standandi í 17 eða Jackandjones og eyða 7000 til 9000 kr í hlýrabol, bara af því að hann kom úr einhverri factoríu. Tískann hefur líka svo stóran galla.

Give this ppl the finger folks! :)

kveðja eldarc
In Death, Is Life