Hæhæ,
litla systir mín á svona eldgamla supernintendo tölvu (sem ég og mamma laumast stundum í :p ) og ég var að pæla í að kaupa handa henni leik í hann í jólagjöf eða eitthvað. Hún á super mario, og getur klárað hann, og þetta er uppáhaldsleikurinn hennaar ;)
ég sá hverhi svona leiki neinstaðar í Rvk, þannig ég fór á amazon, og skoðaði leikja úrvalið í þessar tölvur og var að vonast til að sjá einhvern annan mario leik handa henni, og þá sá ég super mario allstars. Er þetta bara annar leikur, eða endurbætt útgáfa af upprunalega mario? Eða nokkrir leikir í einu?? Það var svo lítið sagt um hann, sem ég sá, þannig ég veit ekkert hvaða leikur þetta er! Vonandi getið þið hjálpað mér, og sagt mér hvort þetta sé bara venjulegi mario, eða hvað? :)

Takk Takk, Betababe
Before you criticize someone you should walk a mile in their shoes…