Ég hef klárað Ocarina of time og Majore mask. Bara snilld þessir leikir. Ég er mjög spenntur fyrir nýja Zelda nema þegar ég fór að skoða myndir af honum. Þá varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum. Þetta kiddie look á honum. Það eru mjög margir sem er ekki alltof vel við þetta look (ef marka má nokkrar skoðanakannanir sem ég hef séð á svona zelda fan síðum) En ég ætla pottþétt að prufa leikinn, og ef mér líst vel á hann, kaupi ég GC bara fyrir Zelda leikinn. En ég bíð samt örlítið spenntur fyrir þessum leik og ég vona endilega að það komi svona áhugamál um þennnan geggjaða leik.