Nintendo hafa boðið fjölmiðlum í morgunverð þann 29. ágúst næstkomandi. Fjölmiðlar fá að háma í sig morgunmat í boði Nintendo í The British Academy of Film and Television Arts í London.

Þeir sem eru væntanlegir eru meðal annars David Gosen, framkvæmdastjóri Nintendo of Europe, upptaka með Satoru Iwata Forseta Nintendo ásamt sérstökum gesti frá bandaríkjunum. Aðalumræðuefnið er vel heppnuð sala Nintendo GameCube og Game Boy Advance ásamt því að rætt verður um glæsilegt ár framundan í leikjum og sérstaklega glæsileg jól.

Einnig verður sérstaklega farið yfir 22 ára sögu Mario sem virðist ekkert eldast. Super Mario Sunshine verður spilanlegur fyrir fjölmiðla ásamt fleiri leikjum.

heimildir:

<a href="http://www.cube-europe.com/newsphp/news.php?id=1480"> Cube-Europe </a>

Þetta er undirskrift