Ekki góðar fréttir fyrir Bill Gates vin okkar allra það er nefninlega búið að brjóta upp X-Box vörnina sem að átti að vera ósigrandi. Það er búið að búa til allavegana 2 gerðir af kubbum og er ég með myndband sem að sýnir getu Neo-x kubbsins (http://playstationmods.com/xbox/neox.wmv) þetta er frekar corky myndband en hefur sinn tilgang. Til að skoða hvaða leikir hafa verið settir á netið má skoða www.isonews.com undir X-box. Nú er bara að fara að kaupa sér x-box og dvd skrifara (75% af leikjunum eru á dvd) og spila svo hressilega. Reyndar er verið að fikta með að minnka sýninga gæðin eða bara hreinlega sleppa myndböndum til að láta þá passa á cdr en það er ekki þess virði fynnst mér. Kubbarnir koma á markað á næstu dögum og hafa verð á bilinu 40-90 dollarar verið nefnd.

Ég vil votta Microsoft samúð mína.


Ps. Ég kann ekki að staffsettja svo ekki benda mér á villurnar :)