mér finst stundum eins og ég sé sá eini á Íslandi sem á 3DS, held að það sé komin tími á að afsanna það og að við förum að deila þessum kóðum okkar. Á 3DS er held ég bara 1 vinakóði og svo getur maður bara joinað online leiki hjá hinum sem virkar mjög vel.

Minn vinakóði er: 2277-6664-3633

fyrir þá sem vita ekki hvernig á að senda kóðana eða finna sinn eigin er það gert svona:

ert í menuinu,
ýtir á appelsínugula broskallinn = Friend List,
til að sjá þinn kóða einfaldlega ýttu á prófílinn þinn og þá ættiru að sjá hann á efri skjánum,
og augljóslega til að adda nýjum ferðu í Register friend, ýtir á Internet og skrifar kóðan. Til hamingju þú ert búin!

ég vona að þið verðið dugleg/ir að senda inn ykkar kóða, miklu skemmtilegra að spila með fólki frá sama landi finst mér allavega.


Bætt við 26. desember 2011 - 01:00
EITT MIKILVÆGT!

þeir sem ætla að adda fólki þurfa að fá kóðan hjá hvorum öðrum til þess að basicly samþykkja hvorn annan, það eru engin friend requests eða þeitt svoleiðis sem er náttúrulega bara heimskulegt