Hæ hæ, ég er stelpa á höfuðborgarsvæðinu sem langar að kaupa The Orange Box, á Ps3. Málið er að ég held að það sé hætt að selja hann í flestum búðum, og mig langar svo að spila Portal og Team Fortress 2. Ég er tilbúin að kaupa hann af einhverjum, svo lengi sem leikurinn virkar og hefur engar mega rispur eða neitt slíkt. Ég er ekki viss um verðið, ætli það fari ekki bara eftir hversu vel farinn leikurinn er, eða eitthvað? Þeir sem vilja selja mér endilega bara gefa upp eitthvað decent verð, og vera í sambandi.