Komið sæl öll,

Ég hef nú aldrei póstað hér inni, en mig langar að óska eftir GameCube leikjum handa 5 ára syni mínum sem fékk forláta vel með farinn GameCube í jólagjöf. Hann er mjög hrifinn af öllu aksjón, farartækjum og hoppi og skoppi. Minna hrifinn af ofbeldi og erfiðum þrautum.

Ef þið eigið GC leiki sem gætu hentað þetta ungum spilara, eru vel með farnir og þið eruð tilbúin að láta fyrir svona þúsundkall stykkið þá vil ég endilega skoða það. Mig langar líka að athuga hvort einhver liggi á auka minniskorti og einhverjum aukahlutum sem mega fara fyrir lítinn pening.

Það sem guttinn minn á er þetta:

GameCube með einu minniskorti og 2 fjarstýringum.

Super Mario Sunshine, Mario Party 6, Mario Kart Double Dash og Crash Nitro Cart.

Með fyrirfram þökk fyrir öll svör (eða engin) og bestu jólakveðjum.