Ég er með 2 stykki Sinclair Spectrum tölvur til sölu.

1. Sinclair ZX 48 k. Serial nr 019-937966. Með henni eru tv snúrur, spennibreytir og ZX Interface 2 til að tengja stýripinna. Með henni er líka bæklingarnir sem fylgdu þeim upphaflega, þe Introduction og svo Basic Programming bók. Þessi tölva er í fínu lagi og virkar eins og hún á að gera. Hef aldrei prófað interfacið svo ég veit ekki með það en geri ráð fyrir að það sé í lagi.

2. Sinclair Spectrum ZX+2 128 k. Serial nr ólæsilegt. Þessi er með innbyggðu segulbandstæki. Með henni eru tv snúrur og spennibreytir. Með henni er líka orginal handbókin. Þessi tölva lítur vel út en er ekki að virka alveg nógu vel. Einhversstaðar er sambandsleysi, test signalið skilar sér í sjónvarpið og stundum kemur tölvan upp en yfirleitt ekki. Hef ekki nennt að rífa hana í sundur til að kíkja inní hana. Einhver laghentur gæti etv fengið hana í lag.

Með þeim eru 16 leikir og forrit:

Frenzy
Reversi (Othello)
Chess (2 eintök)
Reflections
4D Arcade Adventure
Elektro Storm
Backgammon
Flight Simulation
Starblitz
Spellbound
Horace & The Spiders
Paperboy
Cyrus II
Chequered Flag
Horizons Software Starter Pack

Allir leikirnir í hulstrum og með orginal coverum nema Chequered Flag. Ástand leikjanna er að öðru leyti óþekkt. 128 k tölvan spilar þá en meira veit ég ekki. Á ekki laust segulbandstæki til að reyna á annan hátt.

Að auki fylgir bókin 49 Explosive Games For The ZX Spectrum eftir Tim Hartnell.

Þetta selst aðeins í einum pakka. Hvorug tölvan né nokkur leikur verður selt útúr pakkanum.
Hef enga sérstaka verðhugmynd þannig að ekki spyrja. Gerið bara tilboð. Tölvurnar verða seldar hæstbjóðanda ef mér finnst tilboð ásættanlegt. Vil helst vera laus við þetta fyrir helgi því ég er að fara í langa vinnutörn. Get sent myndir ef óskað er.

Tilboð aðeins í PM.