Var að spökúlera hvort einhver hérna ætti þennan leik og væri til í að selja mér hann eða veit hvar hægt er að nálgast hann? Finn hann hvergi á þessu blessaða landi, búin að þræða allar verslanir heimsins (á Íslandi) núna í 2 vikur.
Ætlaði að vera voða góð og gefa kallinum mínum hann í afmælisgjöf núna um helgina.

Ef þú átt leik eða veist hvernig best sé að nálgast eitt kvikindi (og langar að deila því), endilega vertu í sambandi við mig. :)
kunigund@gmail.com

Bætt við 27. ágúst 2009 - 16:02
Jú og þetta er fyrir PS3.