Ó boj ó boj.Á þriðjudeginum fyrir viku keypti ég mér Metal Gear Solid(útaf því að allir hér á Leikjatölvum eru svo spenntir fyrir MGS2:SOL)þó ég sé ekki alveg búinn með hann get ég sagt að þetta er besti leikjatölvuleikur í heimi(sorry ef ég móðgaði einhvern).Ég segi það útaf því að þetta er mjög langur leikur og það er alttaf nóg af Boss battles við hryðjuverkamenn eins og Sniper Wolf(sem er reyndar kona)Vulcan Raven,Revolver Ocelot,einhverja tölvuNinju,Hind þyrlu og mann sem er SVO Spooky útaf hugsanalestri,svifi og stjórnun sinni á öðrum mönnun-Hann heitir Psycho Mantis-

Ég hugsa að flestir hér kannist við söguþráðinn,ef ekki væri ágætt ef þið keyptuð ykkur Metal Gear Solid,þið mynduð ekki sjá eftir því.