Ég er loksins búinn að næla mér í Super Smash Bros Brawl, búinn að vera í burtu í soldinn tíma líka..
Ætlaði að spila hann í gær en Wii tölvan mín nær ekki að lesa hann :´(
Ástæða= linsan er skítug og ég þori varla að þrífa hana sjálfur. Núna þarf ég að bíða eftir að Ormsson opni aftur svo ég geti látið þá þrífa linsuna fyrir mig, því nintendo segir að þeir eigi að gera það, or something.

Ég spila þá bara spyro á meðan, eða CoD.
CoD er nettur, soldið erfiður en þvílíkt nettur.
Spyro er cool multiplayer, nema cameran er stundum erfið.

Gleðileg jól öllsömul og gleðilegt nýtt leikjaár.