Þá er Bond mættur aftur í mögnuðum skot- og bílaleik fyrir PlayStation 2…James Bond 007 : Agent Under Fire. Enn á ný ógna illar áætlanir heimsfriði og það er aðeins einn maður sem getur reddað málunum en það er Bond…James Bond. Tæknilegir yfirburðir PlayStation 2 smella þér í hlutverk 007 í flottasta og besta Bond leiknum hingað til. Leikurinn er stútfullur af hátækni vopnum og græjum, framandi sportbílum og auðvitað fallegum kvenmönnum, sem sagt hin fullkomna Bond upplifun. Leikurinn er blanda af æsispennandi skotleik og túrbóhlöðnum bílaatriðum sem færa Bond víðsvegar um heiminn á fund mestu illmenna. Það er aðeins rétt notkun vopna og njósnabrellur sem gera honum kleift að bjarga heiminum.