um er að ræða game&watch tölvuspilið donkey kong 2 frá 1983, í upprunalegum kassa með öllu því sem sést á myndunum. það er nógu erfitt að nálgast þessi tölvuspil stök, en að finna þau í upprunalegri pakkningu er næstum vonlaust (allavega hérna á skerinu). ég er búin að eiga þetta spil í nokkur ár, og nú er komið að einhverjum sönnum safnara að taka við því. :D

upphafsboð í þennan demant er 4,000kr. spilið virkar 100%, það eina sem er að því er að það eru einskonar nuddför (ekki beint rispur) á neðri skjánum (sjá mynd). og já, batterí fylgja EKKI. þið getið keypt batterí í þetta í tiger, hræódýrt. :)

ég tek við tilboðum í nokkra daga, jafnvel alveg til mánaðarmóta. :)

myndir: http://www.svarta-perlan.com/dk1.jpg
http://www.svarta-perlan.com/dk2.jpg
http://www.svarta-perlan.com/dk3.jpg