Jæja já, ég var að kaupa mér PS2 í dag, ég keypti mér líka minniskort og
ps1 minni og síðan DVD region X.

Síðan þegar ég kem heim kemst ég að því að DVD region X virkar ekki, ég fer
eins og brjálaður um allt netið og kemmst að því að tölvurnar sem Sony
sendi út fyrir Jól (SCPH 3000X R serían) virkar ekki með DVD region X,
þannig að ég sendi fyrirtækinu e-mail og það sagðist senda frá sér nýja
útgáfu innan 2 mánaða. Ég er alls ekki til í að bíða svo lengi. Ég þarf að nota
þetta “núna”.

Þannig að ef það er einhver hér sem á pre-R seríu (flestir örugglega),
mynduð þið hafa áhuga á skiptum, þ.e. aðeins ef hún er í góðu ástandi og
keypt í sumar eða fyrr. Ég myndi telja það nokkuð góð skipti, skipta gömlu
tölvunni fyrir jafn góða eða betri?

Til að athuga hvaða útgáfu af PS2 þú ert með, kveiktu bara á tölvunni með
engan leik í, smelltu svo á Þríhyrning. Þá koma driverarnir, ef efsta er með
R ertu með sömu seríu og ég, ef ekki myndirðu íhuga skipti?

Til að skipta annað hvort senda mér <a
href="http://www.hugi.is/leikjatolvur/bigboxes.php?box_type=userinfo&us
er=Hansi&syna=msg“>skilaboð innan Huga</a> eða <a
href=”mailto:hansr@simnet.is">e-maila mig.</a